Slær öllu öðru við í vitleysuni!!!

Sælt veri fólkið. Get ekki orða bundist vegna vitleysunar hjá atvinnubílstjórum og fl. sem kalla sig samstöðu. Eingöngu skal versla við dýrasta olíufélag landsins í 8 daga, til að knýja fram lækkun hjá þeim ódýrari!!!!! Hvaðan er þetta fólk??? Atvinnubílstjórar eru náttúrulega ekkert að borga það sama og við á einkabílunum vegna sérsamninga við N1 um miklu lægra lítersverð. Ekki að furða að þeir skilji ekki menn eins og mig sem sér heimskuna blasa við ef ég mæti á dæluna. Á ég að láta þetta okurfyrirtæki, sem alltaf er fyrst að hækka og síðast til að lækka, okra á mér í 8 daga????  EKKI SÉNS!! Hingað til hefur alltaf þótt vænlegast til árangurs að versla eingöngu við ÓDÝRASTA fyrirtækið ef á að knýja á um lækkun. Er enn að reyna að skilja hvað þetta fólk er að reyna en finn engin rök við þeirra framkvæmd. Það hljóta fleiri en ég sjá delluna í þessu. Þetta er hallærislegasta leið til samstöðu sem ég hef upplifað. Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband