Mér fallast hendur!!!!!!

Sælt veri fólkið. Ég er hreinlega að fara á límingunum við að lesa andsk.... forheimskuna hjá þeim vitleysingum sem sjá bara enganvegin að Hæstiréttur var að fella dóm vegna ÓLÖGLEGRA LÁNA! JÁ, ÓLÖGLEGRA LÁNA!!!!!!!!!! Er þetta fólk of heimskt til að gera greinarmun á ÓLÖGLEGUM LÁNUM og LÖGLEGUM LÁNUM!!!!! Það er ekkert verið að fjalla um sanngirni í þessu máli. (Ef nágranni þinn er rændur í innbroti á heimili sínu og fær bætur frá tryggingum, átt þú þá einhverja heimtingu á því að fá bætur líka?) Fjármálafyrirtæki hafa á ÓLÖGLEGANN HÁTT rukkað fólk um gríðarlegar fjárhæðir. Sem sagt, ÞJÓFAR!! Eru þau að skila því til baka? Þau hljóta því að vera sakhæf vegna þjófnaðar og skjalafölsunar, ekki satt? Fram á sjónarsviðið hoppa Mörður og fleiri hálfvitar á sama plani og ætlast til, að þessum sömu fjárglæfrafyrirtækjum verði hjálpað að RÆNA almenning áfram!!!!! Vei þeim sem dirfist að framkvæma slíkann gjörning. Ég tek undir það sem fólk hefur sagt hér á þessum síðum, það verður stríð og þið tapið alveg örugglega!!! Nú er réttlætis tilfinningu þjóðarinnar gjörsamlega ofboðið. Samkvæmt boðskap Marðarins, eiga fjárglæfrafyrirtæki sem sömdu af sér, ekki að tapa neinu. Almenningur skal borga sitt en þau ekki!!! OVER MY DEAD BODY. Nú brjótum við þessa hlekki af okkur endanlega og hreinsum helv.... óværuna út úr bæði pólitíkini og fjárglæfrafyrirtækjunum. Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir hvert orð!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 18:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband