Hvar finn ég svona fólk?

Ég á mér draum um að fram á sjónarsviðið komi fólk sem tilbúið væri í harðkjarnastríð gegn þrýstihópum og klíkum innan valdakerfisins! Fólk sem brettir upp á ermar og semur ekki við klíkur eins og LÍÚ, Bændasamtökin, fjármálafyrirtæki né nokkrar aðrar klíkur sem slegið hafa eign sinni á náttúruauðlindir og og önnur verðmæti þessa lands og þvingar þjóðina með okri og rányrkjureikningum hvert sem það lítur!! Fólk sem talar "Íslensku" og leggur allt á borðið. Fólk sem leggur hausa sína að veði í þeirri baráttu að ná til baka því valdi sem þessar klíkur hafa rænt úr höndum kjarklausra og misgáfaðra strengjabrúða sem skipa sali alþingis! Fólk sem semur ekki við nokkurn mann um þau verðmæti sem þjóðin á að sönnu! Fólk sem tilbúið er til grimmdarbaráttu um eðlileg lífskjör í landi sem gæti blómstrað um leið og því kyrkingartaki yrði aflétt sem þessar óværur hafa á athafna- og mannlífi! Hvar er fólkið sem hafði bein í nefinu og óbilandi trú til betra lífs? Er það útdautt? Erum við sem tölum svona deyjandi þursar innan um kjarklausa hortitti sem reyna að verða að mönnum með því einu að lyfta lóðum? Þeir skulu bara athuga það að þeir verða sömu hortittirni í hausnum, sama hvað þeir lyfta! Ég bölva því heitt og innilega að vera orðinn þetta fullorðinn! Svakalega hefði ég verið til í svona slag!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband