Að berja sér á brjóst!

Aumkunarvert er að sjá og heyra stjórnarandstöðuna reyna að sýnast hetjur fyrir að hafa SETIÐ HJÁ við setningu (ó)laganna sem kemur nú í bakið á alþingi. Hvurslags aulaháttur er það að þora ekki að ganga í berhögg við fjármálastofnanir og gefa samþykki sitt með þögninni? Slá sig síðan til riddara eftirá! Varð flökurt á að horfa upp á framsóknartittinn og síðan mútuþegann sjálfann tjá sig í sjónvarpi um hvað þeir hefðu nú verið á móti þessum lögum og SETIÐ HJÁ! Eru engin takmörk fyrir aumingjavæðinguni á alþingi? Mokum þessum hræsnurum öllum í 4-flokknum út af þingi í næstu kosningum. Sýnum sjálf það hugrekki að losa okkur við svona þenkjandi lið!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband