Skríll á vegum VG??????

Hvar eru upphrópanir íhaldskurfanna núna, um að búsáhaldabyltingin hefði verið skipulögð af skríl á vegum VG??? Gera þeir sér loksins grein fyrir því að þjóðin er búin að fá nóg aumingjum? Aumingjum sem loka augunum fyrir því að verið er að fleygja fólki út á götuna með aðstoð fyrirfram pantaðra dóma frá rotnu dómskerfi? Það hefur klárlega komið í ljós að pólítiskt skipaðir dómarar hafa komið sér vel fyrir yfirvöld á þessum tímum. Hvar í veröldinni hefði undirrituðum samningum verið breytt í þágu fjárglæfrastofnana eins og Lýsingu, Sp, og öðrum slíkum? Í bananalýðveldum!! Þetta eru lögbrjótar en samt er dæmt þeim í hag!!! Glæpamenn sem rændu og rupluðu hinn almenna borgara áttu þessi fyrirtæki en lifa í dag í lúxus og vellystingum! Ótal frásagnir eru til um hvernig þeir þaulskipulega, stálu eignum af fólki, verðmátu með aðstoð valdra verkstæða eignir niður úr öllu valdi. Alli þessir glæpahundar ganga lausir og hvorki yfirvöld né lögregla kærir sig um að opna þessa ormagryfju. Það eru greinilega allt of stórir aðilar ofan í þessum drullupytti. Hvað halda stjórnmálamenn að horft verði upp á þetta lengi?? Eru þið fífl???

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband