Varaþingmaður í lögguleik!!!

Var að kafna úr hlátri þegar ég sá myndskeið af varaþingmanni sjálfstæðisflokksins, hrökklast með skelfingarsvip  undan mótmælendum í gærkveldi. Hlustaði síðan á hann í hádegisfréttum lýsa því að hann hafi ætlað að leika löggu og verja girðinguna sem komið var fyrir. Bara þetta atvik sýnir hvað þingmenn eru veruleikafyrrtir. Að ætla sér að sýna fólki í miðjum æsingnum einhverja valdsmannslega tilburði og það borgaralega klæddur og núll og nix í augum þessa fólks, sýnir hvaða fólk sækir inn á þing. Engin kunnátta til að bregðast við aðstæðum sem kalla á skynsama hugsun og útsjónarsemi. Honum var bara fleygt innfyrir girðinguna og hrökklaðist síðan eins og laminn hundur til síns heima. Guð hjálpi Íslandi. Hvenær kemur fólk fram í dagsljósið sem getur horft framan í kjósendur sína og sagt, án þess að blikna, að verið sé að ganga frá brýnustu málum almennings. Að þau haldi hibýlum sínum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband