Sú ömurlega staðreynd blasir síðan við okkur, að allir meðhjálparar þessarra stórþjófa, eru ennþá starfandi innan nýju valdastéttarinnar á íslandi. Látið var að því liggja að þau væru ómissandi í uppgjöri fjármálastofnananna svo hægt væri endanlega að láta þýfið hverfa. Ekkert uppgjör hefur átt sér stað því siðferðið er löngu fokið út um gluggann. Svo skilur þetta hyski ekkert í því að reiðin kraumar ennþá í almenningi sem horfir á þjófana hafa það náðugt í stóru einbýlishúsunum og flottu bílunum. Sjáið þið eignir þessa liðs á uppboðssíðum dagblaða í dag?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.