Steingrímur!!!! Sem fjármálaráðherra ertu greinilega gjörsamlega vanhæfur. Þú ætlaðir að leggjast á hnén og greiða Ice-Save þegjandi og hljóðalaust. Sem betur fer varstu stoppaður af. Núna ertu að drulla upp á hnakka með að moka milljónum undir hvað? Vini og vandamenn???? 30 Milljónir í vasann á fólki sem rekur unglingaheimili sem nýtur ekki lengur trausts???? Ertu að biðja fólk um alvöru byltingu? Það eiga allir að herða sultarólina en horfa síðan upp á fjármálaráðherra misnota almannafé eins og ekkert sé sjálfsagðara? Ég var einn af þeim mörgu sem ætluðu þér að verða sá strangheiðarlegi stjórnmálamaður sem kæmi einhverju skikk á óreiðuna eftir hrun. Sem vinstri-sinnaður stjórnmálamaður ertu ein mesta kveif sem sést hefur og kropið fyrir peningavaldinu. Þú ert ein mestu kosninga vonbrigði íslandssögunnar. Sami skítur í sömu skál inni á alþingi. Það hefur berlega komið í ljós að ENGUM flokksbundnum stjórnmálamanni er treystandi. Nýtt óháð framboð verður að fæðast fyrir næstu kosningar. Svo virðist sem við getum bara ekki losnað við óþverrann sem er landlægur hjá ÖLLUM flokkum landsins. Ég mun frekar kjósa hundinn í næsta húsi heldur en nokkurn alþingismann sem við sitjum upp með. Mér er alvarlega flökurt.
Athugasemdir
Algjörlega sammála
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.11.2010 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.