Umskurn????

Alveg verður maður kjaftstopp yfir hvaða vitleysa birtist hjá blaðamönnum. Er ekki farið fram á stúdentspróf? Skildist það einhvern tíma. Umskurn?? Heldur hann (hún) að verið sé að tala um egg?? Ef blaðamaður veit það ekki, er verið að tala um að klippa forhúðina af getnaðarlimi karlmanna. Vonandi er þetta ekki kvenmaður. Sé hana reiða skeið á loft til að brjóta "skurn" af getnaðarlimi ástmanns síns í tilhugalífinu! Sæl að sinni.
mbl.is Umskurn gegn HIV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes B. Urbancic Tómasson

Ég ætla rétt að vona að hún sé heldur ekki að umskera karlinn í tilhugalífinu...

Jóhannes B. Urbancic Tómasson, 22.2.2011 kl. 21:45

2 Smámynd: Davíð Oddsson

hehe, mér datt nokkurn veginn það sama í hug :)

Spurning hvort þetta gerist ef maður sleppir því að hreinsa "ostinn" mjög lengi... kannski harðnar hann og breytist í einhverskonar skurn?

Davíð Oddsson, 23.2.2011 kl. 13:42

3 Smámynd: Davíð Þ. Löve

Já, "UMSKURÐUR" heitir þetta. Andsk..... sadista meðferð á "lille ven".

Davíð Þ. Löve, 23.2.2011 kl. 22:42

4 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Þetta er nokkurn veginn gagnslaust "vopn" í þessum hildarleik í Swazilandi.

Ólafur Þórðarson, 26.2.2011 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband