Nú eru icasave kosningar framundan. Okkur Íslendingum gefst einstakt tækifæri til að senda fjármálaheiminum skýr skilaboð, "Skattborgarar neita að ábyrgjast glanna- og fávitaskap spákaupmanna" sem tóku jafnvel þátt í árásum á eigin gjaldmiðil! Áróðrinum hefur verið hellt yfir okkur úr öllum áttum um að okkur beri að borga og reynt að höfða til samvisku fólks að nú skuli greiddar upp syndir þessarra glæframanna! Ég trúi varla eigin eyrum þegar ég heyri hversu margir vilji ábyrgjast þetta áfram. Tek eftir því að fólk á mínum aldri (frá 50 og upp úr) er helst tilbúið að segja já við þessari vitleysu. Þessi aldurshópur virðist vera haldinn mesta þrælsóttanum og vilji ekki "rugga bátnum" eins og sést best innan ASÍ hreyfingarinnar. Það virðist vera hægt að bjóða þessu fólki hvaða vitleysu sem er. Þreyta það, þá borgar það. Íbúar Evrópu horfa hingað með öfund því við fáum tækifæri með þjóðaratkvæðagreiðslu að henda af okkur þeim hlekkjum sem peningavaldið hefur lagt á okkur í gegnum tíðina. Ætlum við að senda þau skilaboð til þeirra að við höfum bara lagst á hnén og gefist upp??? Við getum lagt línuna fyrir Evrópu!!! Fólk er algerlega búið að fá nóg af ægivaldi þeirra sem stjórna á bak við tjöldin og bíða í ofvæni eftir byltingunni frá Íslandi!! Eða er það ekki?? Ætlum VIÐ að gefa þessum glæframönnum áframhaldandi veiðileyfi á börnin okkar?? Er það ekki OKKAR að standa vörð um framtíð þeirra og kenna þeim að ENGINN hafi heimild til að seilast í vasa þeirra án þeirra leyfis?? Eða ætlum VIÐ aðeins að framleiða fleiri þræla og byssufóður fyrir fjárglæframenn? Ég hélt að Íslendingar væru MENN en ekki MÝS! SÝNUM ÞAÐ Í VERKI!!!
Athugasemdir
Ekki skil ég þá afstöðu að fólk á mínum aldri skuli vera með svo mikla sjálfseyðingahvöt að vilja börnum og barnabörnum sínum það að vera í ábirð fyrir fjárglæpamenn og sína öðrum þjóðum að ÍSLENDINGAR SÉU GUNGUR SEM LÚFFA FYRIR GLÆPUM ER ÞAÐ VIRKILEGA SVO KOMIÐ FYRIR OKKUR AÐ SVO SÉ,UNGUR NEMUR OG GAMALL TEMUR, EN NÚ ÞARF AÐ SNÚA ÞESSARI SPEKI VIÐ, GAMALL NEMUR UNGUR TEMUR ER KOMIÐ SVO, VONANDI HAFA ÞEIR SEM YNGRI ERU OG ALDUR TIL AÐ KJÓSA OG MÆTI TIL AÐ SEGJA NEI VIÐ ÞESSARI NAUÐ.
Jón Sveinsson, 4.4.2011 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.