Tíminn kominn!

Nú er svo sannarlega kominn tími til að fólkið rísi upp og sameinist gegn ÖLLUM sérhagsmuna- og þrýstihópum landsins sem öðrum fremur hafa tafið alla uppbyggingu samfélagsins! Það er tímabært að kraftmikið fólk komist inn á þing með það að leiðarljósi að ganga á milli bols og höfuðs á þessum klíkum (sem eiga sendisveina og málpípur á alþingi) sem haldið hafa þjóðinni í heljargreipum með frekju sinni og yfirgangi! Afl sem mun leggja höfuð sín að veði um árangur og hlusti ekki á vælið og veinið sem endalaust lekur frá þessum hópum. Það er löngu tímabært að þeir sem taka sér á hendur þá ábyrgð að fara inná alþingi sýni þann manndóm í sér að láta ekki ákvarðanafælni gelda þingið. Það hefur sýnt sig að þessir hópar nýta sér þann veikleika og færast allir í aukana þegar svona linkind og roluháttur ræður ríkjum. Það er orðið tímabært að fá fólk með bein í nefinu þarna inn og moka þessum kjaftaklúbbi út sem er ekkert annað en samansafn jakkafataklæddra aula og pilsfalda skessum sem þjást af ákvarðanafælni af háu stigi! Við þurfum á fólki að halda sem tekur stjórnina og valltar yfir allar hindranir sem fyrir verða! Öðruvísi komumst við aldrei uppúr því svaði sem skilið var eftir handa okkur við hrunið!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband