Síðbúin áramótagleði?

Get ekki að því gert en mér finnst þetta hálf fyndið þegar sprengjudeild lögreglunar hleypur til vegna pappakassa sem líklegast eru leifar af skotköku! Enn er verið að sprengja restar af áramótagleðinni svo þessi ýktu viðbrögð eru hlægileg! Annars sýnir þetta auðvitað taugaveiklunina sem ríkir vegna svikaranna í stjórnaráðinu! Hjá lögreglu er búist við því versta þegar vegfarandi rekur við í nágrenninu! Verst er að apakettirnir í ríkisstjórninni vita ekki einu sinni af þessum viðbúnaði fyrr en eftirá. Hvernig dettur lögreglu í hug að molbúarnir sem búa á þessu skeri hafi kjark eða þor í svona framkvæmd? Það er búið að taka þessa sundurleitu þjóð svo illa í rassgatið að hún nennir ekki einu sinni að hrista af sér verðtryggingu, fjárglæframenn og þjófa, heldur kýs það lið  inn á þing svo það eigi greiðari leið að fjármagninu!
mbl.is Mikill viðbúnaður vegna sprengjuleifa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það ætlar ekki einusinni að takast að sprengja ríkisstjórnina...

Guðmundur Ásgeirsson, 31.1.2012 kl. 13:25

2 Smámynd: Davíð Þ. Löve

Hahahaha! Satt segir þú!

Davíð Þ. Löve, 31.1.2012 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband