Hvernig er með þetta handónýta, getulausa lið sem á að vera að störfum fyrir þjóðina? Á bara að horfa upp á þessar stanslausu árásir á EIGNARRÉTT einstaklinga aðgerðarlaust? Það er framið stórrán á eignahluti okkar í eigin fasteignum í gegnum verðtryggingu og engin gerir nokkuð skapaðann hlut! Hvar eru fjármagnseigendur núna? Ekki heyrist neitt í þeim glæpalýð þegar kemur að eignarrétti annarra en þeirra eigin! SNÚUMST TIL VARNA STRAX! Tíminn er kominn!!!!
Bensínið þyngir íbúðarlán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það gerist nákvæmlega ekkert, NEMA almenningur mæti á Völlinn og láti þetta lið heyra og finna að nú sé MÆLIRINN FULLUR!!!
Hrúturinn (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 09:55
Því nennir enginn!!!!
Jóhanna (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 09:59
Hættið að væla. Gerið frekar eitthvað sjálfir.
Afhverju afnemið þið ekki verðtrygginguna hjá ykkur. Farið yfir í óverðtryggð húsnæðislán!!!
Ólafur Guðmundsson, 14.3.2012 kl. 10:01
Til lengri tíma litið hækkar líka fasteignin þín í verði ef eldsneyti hækkar.
Ælar þú að endurgreiða lánveitanda þínum þá hækkun sem á eftir að varða á þinni fasteign þegar þú selur ef hann hækkar ekki lánið samkvæmt verðbólgu.
Þú yrðir þá fyrstur manna til þess.
Landfari, 14.3.2012 kl. 10:29
Held að það sé komin tími til að stokka upp og endurskoða allar þessar hagfræði-reikniformúlur og allt það, sem er undir þaki þessarar blessaðrar neysluvísitölu, sem er í hliðarsambúð við okkur allt lífið og stýrir okkar för á einn eða annan hatt, hvort sem það okkur líkar eður ei.
josira, 14.3.2012 kl. 12:14
Rjúfið þið tengslin eins og ég gerði. Seljið allt helvítis draslið og flytjið í menninguna.
Ég losaði mig úr þessum viðjum fyrir 22 árum og yfirgaf óstjórnina og siðleysið og var það mitt mesta lán í lífinu.
Ég þrífst eins og blóm í eggi.
V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 15:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.