Ertu að grínast Geir?

Telur þú Sjálfstæðisflokkinn vera þinn vettvang? Þar sem menn með góðann vilja eru svínbeygðir til hlýðni við valdaklíkuna! Sjáðu hvað gerðist með Bjarna, formanninn sjálfann? Miðað við hvernig hann talaði í byrjun hefur hann snúist um 180 gráður og beygt sig til hlýðni við flokkseigendaklíkuna! Þessi flokkur er DAUÐUR sem flokkur fólksins. Sama á við um alla gömlu flokkana. ENGINN er þarna inni í þágu þjóðarinnar þó að fjöldi manna trúi enn blekkingaleiknum. Hefði talið að þú byggir yfir meiri visku en þetta. Þetta er skot í eigin fót góði minn! Sorglegt!
mbl.is Geir Jón gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér með þetta.   Ég þekki nokkra góða og gegna sjálfstæðismenn sem hafa reynt að breyta flokknum innanfrá en ekki haft erindi sem erfiði.  'Eg held að ráðamenn hans séu að leita sér að hvítri skykkju til að breiða yfir það sem ekki má tala um, og menn þar á bæ vilja helst gleyma.  En þó Jón Geir sé eflaust hinn besti maður þá held ég að það hreinlega dugi ekki til.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 13:17

2 Smámynd: Davíð Þ. Löve

Hann hreinlega eyðileggur mannorð sitt við þessar gjörðir. Hann verður bara gleyptur af valdaklíkuni.

Davíð Þ. Löve, 23.2.2012 kl. 13:49

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er algjör hætta á því Davíð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2012 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband