Færsluflokkur: Bloggar

HVAÐ???

Það held ég að þeir karlmenn sem þurftu bara eina nótt til að barna stelpurnar hristi nú hausinn. Voru jafnvel að hitta þær í fyrsta sinn og greddan tók völdin. Þurftu síðan að bera ábyrgð gjörða sinna alla sína tíð. Hvurslags vatnspungar eru ungir menn orðnir í dag? Ja hérna, svei mér þá!
mbl.is Meðalparið þarf 104 skipti til óléttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glerhúsið!

Ég held að Björn B. ætti að halda sig á mottuni. Eða eiga allir aðrir en sjálfstæðismenn að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Þurfum kannski ekki að vera hissa að þeir séu að skríða unda steinunum núna. Þriðjungur þjóðarinnar er farinn að hóta því að kjósa þennan ófögnuð til valda á ný. Nýtt, ábyrgt framboð verður að bjóða fram til næstu kosninga. Framboð sem leggur hausana að veði fyrir heimilin í landinu.
mbl.is Skýr og brýn ástæða afsagnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðið gott.

Nú held ég að kallarnir verði að hætta að nota veiðiferðir sem afsökun til að komast á fyllerí án kellingana. Nei, án gríns, þá borgar sig ekki að sumbla of lengi frameftir. Upplifði sjálfur þynnkur á skotveiðum í gamla daga. Vaknað fyrir birtingu og skriðið ofan í skurði. Var ekki notalegt að láta haglabyssuna berja sig í því ástandi. Veit ekki með stangveiðina en hlýtar að vera eitthvað þægilegra.
mbl.is 36% ökumanna undir áhrifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræfilsháttur RUV!

Það ætlar engan endi að taka aumingjahátturinn hjá þessari stofnun. Er ég þá ekki að tala um Spaugstofuna heldur HM. í handknattleik. Ég mun ekki sakna þeirra, því það var farið að slá verulega í þá blessaða. Voru þó hrikalega góðir í kringum hrunið og að ég held, komu í veg fyrir mun alvarlegri sálarkreppu landans á þeim dimma tíma. Hafi þeir þökk fyrir það . En að þessi stofnun hafi ekki lengur efni á því að leyfa þjóðinni að fylgjast með  landsliðinu okkar, sem er í heimsklassa, er algjört reginhneyksli. Ríkið ætlar virkilega að láta einkarekna stöð, sem leikur sér í kennitöluskiptum eftir þörfum,  hirða síðasta skartið af sér! Þessi stöð hefur skilið eftir sig skuldahala í öllum áttum, afskrifað hundruð milljóna með reikniskúnstum, en hefur efni á því að kaupa enska boltann, hirða Formúlu 1 kappaksturinn og núna HM í handknattleik??? HVERNIG ER ÞETTA MÖGULEGT??? Er ekki kominn tími á að rannsaka þetta furðufyrirbæri sem virðist allt geta keypt en skilur eftir sig fjöllin af skuldum? Ef ríkið getur ekki keppt við þennan kolkrabba er þá ekki eitthvað stórkostlega gruggugt á ferð? Eða er ríkisstofnuninni skítsama um hvort landinn fái að sjá landslið sitt keppa án þess að þurfa að greiða Jóni Ásgeiri og frú fyrir það?

Já, já!

Einhvernveginn þarf að reyna að réttlæta mílljóna eyðsluna í mótefni sem svindlað var inná okkur. Halda bara áfram að væla úlfur, úlfur.
mbl.is Of snemmt að blása flensuna af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákærum?

Fyrirgefið, en hverjir hafa verið ákærðir? Stærstu þjófarnir lifa í vellystingum erlendis og valsa hér um í heimsóknum eins og ekkert hafi í skorist! Flestir kúlulánþegarnir eru enn að störfum innan banka- og fjármálastofnana. Halda öllum sínum eignum og fá allt afskrifað! Lifa í lúxus innan um skilanefndir og lögfræðinga sem rænt hafa völdum í íslensku samfélagi. Milljónir í mánaðarlaun á meðan fólk lifir á bjargbrúninni.  Á ég að hlægja eða? Byrjum að brýna sveðjurnar. Mér sýnist almenningur þurfa að gerast ákæruvald, dómarar og böðlar í framtíðini. Eða ætlar fólk að láta þetta ganga svona áfram? Er að horfa á fjölskyldumeðlimi hrökklast úr landi umvörpum vegna atvinnuástands og vantrausts á aumingjunum sem endalaust rata inn á þing. Horfði upp á það sama um 1970 þegar fjöldinn allur yfirgaf þetta sker. Þ.á. m. föðir minn og hans nýju fjölskyldu. Hélt að ég þyrfti ekki að upplifa þetta aftur í minni tíð. Nú er orðið tímabært að stjórnmálamenn verði gerðir ábyrgir fyrir gjörðum sínum. Bíð í ofvæni eftir úrskurði nefndar vegna vanhæfi  í kringum hrunið. Menn verða að gera sér grein fyrir því að ef þeir ætla sér að starfa inn á alþingi eru þeir þjónar almennings en ekki flokka. Þessu virðast þeir hafa gleymt. Enda framleiddir erfðaprinsar og prinsessur til þess eins að gæta hagsmuna útvalinna fjölskyldna og klíka. Svo standa menn og neita að segja af sér þrátt fyrir risa fjárstyrki frá helstu bankaræningjum landsins. Og þriðjungur landsmanna ætlar samt sem áður að kjósa svona menn! Hvað er að???
mbl.is Von á fleiri ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísa honum frá landinu við komu!

Vekjum athygli á hegðun norskra stjórnvalda og skellum á nefið á kónginum. Vandræðalegt hvernig við skríðum fyrir snobbhyskinu ennþá. Aumkunarverðar tilraunir til að gægjast innfyrir dyrnar hjá aðlinum. Og það á meðan norsk stjórnvöld hafa í hótunum við okkur vegna makrílveiða! Aumingjaskapur okkar íslendinga er orðinn svo yfirgengilegur að mér verður illt við tilhugsunina. Enginn hefur dug í sér til að stíga fram og taka á þessum ræflum sem hóta og reyna að grafa undan okkur sem þjóð. Hin diplómatíska leið er löngu dauð. Við munum aldrei ná neinni virðingu meðal annarra þjóða á meðan við höfum ekki harðkjarna front í leiðtoga sem rífur kjaft og segir svona vitleysingum að halda kjafti. Stjórnmálastéttin er yfirfull af aumingjum sem læðast með veggjum og þora ekki að standa og falla með ákveðnum skoðunum sínum. Allskyns þrýstihópar og skuggaverur virðast ráða öllum hreyfingum þeirra. Svei mér þá, ég ætla að stofna stjórnmálaflokk. Myndi valta yfir þessar "kellingar".

mbl.is Noregskonungur kemur í laxveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrið nú!!!!

Og dollarinn lækkar og lækkar!!! Hefur það bara ekkert að segja???
mbl.is Eldsneyti hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kunnuglegt?

Man fólk eftir því þegar menn í "útlöndum" sá það sem íslenskir fjármálamenn vildu ekki sjá? Þetta hljómar nákvæmlega eins.
mbl.is Ekki hætta á greiðsluþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn tími til!!

Klíkur hafa verið að sölsa undir sig vatnsréttindi fólks um allan heim. Sú stærsta er tengd Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, ( World Bank) eins og þeir segja í frábærri heimildarmynd sem ber nafnið FLOW að mig minnir. Hún er aðgengileg á netinu og sýnir hvernig þessir drulluhalar starfa. Til dæmis þurfti nánast borgarastyrjöld í Bolivíu svo almenningur kæmist í hreint vatn. Hér eru fjárfestar tengdir íhaldinu að kaupa kerfisbundið upp jarðir um allt land sem hafa góð vatnsréttindi upp á að bjóða. Eftir hverju er verið að bíða? Öðru Magma klúðri?
mbl.is Hreint vatn er mannréttindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband